Karahnjúkar.

10. desember 2006 klukkan 20:14
Góðan daginn fólk.

Jólin að ganga í hús og það kemur manni í ágætt stuð. Enda mikið til að hlakka til. Prófin t.d. búinn og maður loksins frjáls við allt þetta stúss sem að því fylgdi, svo ekki má gleyma jólamatnum sem að kemur maganum í dans stuð. Því miður, þá er maður orðinn það hrukkóttur og gamall að pakkarnir verða minni og minni með árunum. Er hræddur um að í dag fæ ég bara heimatilbúnar könnur sem á standa "Afhverju reyna?"

Bjarni var nú nokkuð reiður þarna um daginn, svona mikið af Kiwi gæti gert hvern sem er brjálaðan.

En minn reiðis listi væri eitthvernmeginn svona:

1. Dýraföt.

Okey, það er alveg sætt og krúttlegt, mig langar alveg að taka dýrið og knúsa úr því morgunmatinn. En komon, þegar fólk er farið að klæða hundana sína í jakkaföt þá er þetta komið útí öfgar. Fer ekki að líða á löngu þar til að yngri gellu hundar verði kominn í stutt pils, g-streng, taka allan litinn úr hárinu og prufa að reykja bakvið Apótekið.

2. Sígarettulykt af fötum.

Halló. Kaupið ykkur rakspíra. Erfitt.

3.
Fólk sem að veit ekki betur.

Fólk sem að veit ekki betur, þykist vita betur og lætur það þannig bitna á fólki sem að veit betur. Ekki að ég viti betur en ég veit betur en að þykjast vita betur en allir aðrir. Ætli þú veist betur?

4. Sykurskert.

Það kom um daginn, ný kókómjólk á markaðinn. Okey, flott. Leist vel á það, gat ekki beðið eftir að koma bragðlaukunum í gang með ískaldri kókómjólk.... Sykurlaus. Er til sykurlaust súkkulaði? Er það ekki bara vanilla ? Það er því miður til sykurlaust fyrir allt. Ætli jólamaturinn verði sykurlaus hjá feita fólkinu í ár? Nope.

5. Orðið Vanilla.

Eignilega bara útaf Sykurskert hérna fyrir ofan. Gleymdi mér og byrjaði að segja þetta orð oft, og þá hata ég það núna.

6. Hafnargötu spyrnu.

Ekkert eins og að fara einn rúnt á Hafnargötunni og taka smá spyrnu þarna, ha. Eins og einn helvíti skemmtilegi náunginn, sem að var að spóla og var ógeðslega gaman, bros á vör og hann nýbúinn að kaupa sér kók og setti meir sykur í kókið bara til að geta orðið aðeins meir aktívari í spyrnunni. Þessi skemmtilegi náungi klessti beint inní Landsbankan. Mmm, þetta fær mig til að brosa.


Ágætis listi svosem.

Ekki að mér sé ekki sama.

Cramer out.




Njarðlem
Geira skrifar ...
haahhaha flottur
10. desember 2006 klukkan 23:14
Bjarni skrifar ...
Hehehe :D

Mikið var að þú bloggaðir drengur og ég er svo ánægður meðþig að ég ætla aðh ringja í þig og segja nákvæmlega það sem ég var að skrifa á msn , svo ætla ég að fara á aðrar síður og kommenta um þær og vera hissa á hversu góð eða léleg færslan þar er og svo ætla ég að fara í fifa..


EN annars flott hjá þér kall :D
11. desember 2006 klukkan 02:16
Eva Rún skrifar ...
Hmm...Var að Velta því fyrir mér, var ekki Sykurlausar mat og Drykkarvörur t.d. KókóMjólk Búnar Til handa þeim sem eru með sykurSýki?? Ekki handa fólki sem er aðeins yfir KjörÞyngd og getur bara hreinlega ekki Hugsað sér líf án KókóMjólk? =)

Kanski eitthvað Fólk sem Veit Betur, Getur Frætt mig aðeins um þetta! =)
11. desember 2006 klukkan 02:32
Cramer skrifar ...
Nei nei hvernig læturu. Sykursjúkt fólk étur bara kúrkur og núðlur.
11. desember 2006 klukkan 02:57
Arnar Stef. skrifar ...
mig langar að smakka þessar kúrkur :S

annars geggjað blogg :D

Skarpi setur stundum hundinn sinn í pólobol.. talk some sense into him hehe
11. desember 2006 klukkan 18:01

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hver skrópar mest í skólanum ?